Útgerðarfélagið Nesver ehf. á Rifi fékk nú á dögunum afhentan nýjan Cleopatra bát frá Bátasmiðjunni Trefjum í Hafnarfirði. Báturinn hefur hlotið nafnið Tryggvi Eðvarðs SH og leysir hann eldri samnefndan bát af hólmi sem var mikill aflabátur. Að útgerðinni stendur Ásbjörn Óttarsson og fjölskylda en Arnar Laxdal Jóhannsson er skipstjóri.
Tryggvi Eðvarðs SH er af gerðinni Cleopatra 38 og mælist 15 brúttótonn.
Aðalvél bátsins er Cummins QSM 11610hp tengd ZF gír. Báturinn er útbúinn siglingatækjum af gerðinni Furuno. Hann er einnig með vökvadrifnum hliðarskrúfum að framan og aftan sem tengdar eru sjálfstýringu bátsins. Línuspil og færaspil eru frá Beiti. Öryggisbúnaður kemur frá Viking.
Rými er fyrir 12 stykki 660 lítra kör í lest. Í bátnum er innangeng upphituð stakkageymsla. Borðsalur er í brúnni auk stóla fyrir skipstjóra og háseta. Svefnpláss er fyrir fjóra í lúkar auk eldunaraðstöðu, með eldavél, örbylgjuofni og ísskáp.