Kjell Nilsen útgerðarmaður frá Frøya í Noregi fékk nú á dögunum afhentan nýjan Cleopatra bát frá Bátasmiðjunni Trefjum í Hafnarfirði. Kjell verður jafnframt skipstjóri á bátnum.

Báturinn hefur hlotið nafnið Frida, hann mælist 11 brúttótonn og er af gerðinni Cleopatra 33.

Aðalvél bátsins er af gerðinni Yanmar 6CX 400hö tengd ZF286IV gír. Báturinn er búinn siglingatækjum af gerðinni Furuno og Simrad. Hann er með  hliðarskrúfu að framan tengdri sjálfstýringu bátsins.  Báturinn er útbúinn til veiða á töskukrabba með gildrum og netaveiða.  Netaveiðibúnaður og gildruspil eru frá Hydema.  Á dekki er krani af gerðinni Fassi. Öryggisbúnaður bátsins kemur frá Viking.

Rými er fyrir 12 stk 380 lítra kör í lest.  Svefnpláss er fyrir 2-3 í lúkar ásamt eldunaraðstöðu með eldavél, örbylgjuofni og ísskáp.