Heiða Kristín Helgadóttir hefur störf sem framkvæmdastjóri Sjávarklasans á Íslandi í sumar. Hún hefur undanfarin ár starfað sem framkvæmdastjóri Niceland Seafood auk þess að hafa komið að stofnun og rekstri hugbúnaðarfyrirtækja hérlendis og í Bandaríkjunum.

Í tilkynningu frá Íslenska sjávarklasanum er haft eftir henni að hún hafi lengi hrifist af starfi Sjávarklasans á Íslandi enda hafi klasahugmyndafræðin margsannað gildi sitt við stofnun og uppbyggingu fyrirtækja og nýrra verkefna.

„Sjávarklasinn byggir á góðum grunni og er í lykilstöðu sem hreyfiafl í íslensku samfélagi nú þegar áherslan á fullnýtingu afurða og hringrásarhagkerfið er í hámæli. Nýjasta verkefni klasans, Grænir iðngarðar í Helguvík er til marks um þann metnað og framtíðarsýn sem Sjávarklasinn hefur ætíð staðið fyrir og ég er stolt og spennt að fá að leggja lóð mitt á vogarskálar Þórs Sigfússonar stofnanda klasans og hans samstarfsfólks við að auka fjölbreytni í íslensku atvinnulífi með áherslu á nýsköpun og verðmætasköpun innan bláa hagkerfisins,“ segir hún.

Heiða Kristín Helgadóttir verður framkvæmdastjóri Sjávarklasans á Íslandi.
Heiða Kristín Helgadóttir verður framkvæmdastjóri Sjávarklasans á Íslandi.

Þór Sigfússon, stofnandi sjávarklasans, segir spennandi tíma framundan hjá Sjávarklasanum. Aldrei hafi verið meiri og fjölbreyttari sprotastarfsemi í bláa hagkerfinu.

„Það er mikill fengur að fá Heiðu Kristínu til liðs við okkur. Hún er kraftmikil og með víðtæka reynslu sem mun nýtast vel við að leiða starfið áfram og takast á við þær áskoranir sem framundan eru.” segir Þór.

Heiða er með BA gráðu í stjórnmálafræði frá Háskóla Íslands. Hún hefur starfað sem pólitískur ráðgjafi Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur, formanns Viðreisnar frá áramótum og var kosningastjóri og framkvæmdastjóri Besta Flokksins og einn af stofnendum Bjartrar Framtíðar.