Aflaregla keilu gerir ráð fyrir að aflamark ákvarðist sem 13% af stofni keilu 40 sentímetrar og stærri á stofnmatsári. Samkvæmt þessari aflareglu hefur aflamark á næsta fiskveiðiári (2017/2018) verið ákveðið 4.370 tonn en var 3.780 á síðasta fiskveiðiári. Gert er ráð fyrir að stofninn standi í stað á næstu árum.
Aflaregla löngu er svipuð og í keilu, aflamark ákvarðast sem 18% af stofni löngu 75 sentímetrar og stærri á stofnmatsári. Samkvæmt þessari aflareglu hefur aflamark verið ákveðið 8.598 tonn á næsta fiskveiðiári en var 9.343 tonn á því síðasta.