Nýtt uppsjávarskip Síldarvinnslunnar í Neskaupstað, Börkur NK, sem hefur verið í smíðum hjá skipsmíðastöð Karstensens í Gdynia í Póllandi, er nú á leið til Skagen í Danmörku þar sem framkvæmdum við skipið verður haldið áfram. Dráttarbátur dregur skipið til Skagen og var lagt af stað með það síðdegis í gær og er áætluð koma á áfangastað að morgni fimmtudagsins 8. október.
Heimasíða Síldarvinnslunnar segir frá. Skipið var sjósett í Gdynia nýlega og síðan hafa framkvæmdir gengið vel. Nú er yfirbygging komin á skipið og mynd komin á skipið, sem er hið glæsilegasta.
Í frétt Síldarvinnslunnar segir að Karl Jóhann Birgisson er í Skagen og mun fylgjast þar með áframhaldandi smíði á Berki. Í Skagen er þess utan verið að vinna í systurskipi Barkar, Vilhelm Þorsteinssyni EA, og fylgist Karl Jóhann með öllum framkvæmdum þar um borð þar til Börkur kemur. Að hans sögn ganga öll verk um borð í Vilhelm ágætlega, segir í fréttinni.