Útgerðarfélagið West Atlantic AS í Tromsø í Noregi fékk nú á dögunum afhentan nýjan Cleopatra 36B beitningavélarbát frá Bátasmiðjunni Trefjum ehf. í Hafnarfirði. Báturinn er systurskip TRANØY sem útgerðin fékk afhent í upphafi árs 2016. Að útgerðinni stendur Bjarni Sigurðsson, Íslendingur sem verið hefur búsettur í Noregi í áratugi.

Nýi báturinn hefur hlotið nafnið Aksel B. Báturinn mælist 18 brúttótonn. Aksel B er af nýrri gerð Cleopatra 36B sem er sérhönnuð inn í undir 11 metra veiðikerfið í Noregi.

Aðalvél bátsins er af gerðinni Scania D13 550hö tengd ZF500IV gír. Báturinn er útbúinn siglingatækjum af gerðinni JRC og Simrad.

Báturinn er einnig með vökvadrifna hliðarskrúfur að framan og aftan sem tengdar eru sjálfstýringu. Báturinn er gerður til línuveiða með beitningarvél. Beitningavélarkerfi og línuspil er frá Mustad og annar búnaður til línuveiða frá Stálorku ehf. Blóðgunarkerfi er um borð og sjókælir frá Kælingu ehf.

Öryggisbúnaður bátsins kemur frá Viking.

Rými er fyrir 12 stk. 660 lítra kör og 4 stk. 460 lítra kör eða 29 stk. 460 lítra kör í lest. Í bátnum er upphituð stakkageymsla með aðstöðu fyrir 4 skipverja. Sæti er fyrir áhöfn í brú. Svefnpláss er fyrir fjóra í tveimur klefum. Salerni og sturtuaðstaða í lúkar. Í lúkar er eldunaraðstaða með eldavél, örbylgjuofn og ísskáp.