Bátsmiðjan Trefjar í Hafnarfirði afgreiddi nú á dögunum nýjan 15 brúttótonna Cleopatra bát til Bø í Vesterålen sem er í Nordlandsfylki í Noregi. Hann er útbúinn til neta- og handfæraveiða. Kaupandi er Ansten Albrigtsen sem jafnframt verður skipstjóri.
Báturinn hefur hlotið nafnið Bøbas og er af gerðinni Cleopatra 36 sem er sérstök útgáfa af Cleopatra 38. Aðalvélin er af gerðinni Cummins QSM11 610hp tengd ZF V-gír.
Báturinn er búinn fullkomnum siglingatækjum af gerðinni Simrad og Furuno. Hann er með vökvadrifinni hliðarskrúfu sem tengd er sjálfstýringuna. Búnaður til netaveiða kemur frá Lorentzen og Rapp í Noregi. Öryggisbúnaður er frá Viking-björgunarbúnaði.
Rými er fyrir 11 stk 660lítra kör í lest. Í bátnum er upphituð stakkageymsla og sturtuklefi. Borðsalur er í brúnni auk stóla fyrir skipstjóra og háseta. Svefnpláss er fyrir fjóra í lúkar auk eldunaraðstöðu með eldavél, örbylgjuofn og ísskáp.
Reiknað er með að báturinn hefji veiðar nú í ágúst.