Alexander John Polson útgerðarmaður fékk nú á dögunum afhentan nýjan Cleopatra 31 bát frá Bátasmiðjunni Trefjum í Hafnarfirði.
Alexander verður sjálfur skipstjóri á bátnum.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá Trefjum en nýi báturinn heitir Research og er 9.6 metrar á lengd og mælist 8.5 brúttótonn.
Það má til gamans geta þess að Alexander var áður einn af eigendum útgerðar Research sem stundar uppsjávarveiðar á Hjaltlandseyjum, segir í tilkynningunni.
Aðalvél bátsins er af gerðinni FPT N67 420hö tengd ZF286IV gír. Báturinn er útbúinn siglingatækjum af gerðinni JRC frá Sónar ehf. Hann er einnig útbúin með vökvadrifnum hliðarskrúfum að framan og aftan sem tengdar eru sjálfstýringu bátsins.
Báturinn verður á strandveiðum. Handfærarúllur eru frá DNG.
Lest bátsins rúmar tólf 380 lítra fiskikör.
Lífbátur og annar öryggisbúnaður bátsins kemur frá Viking.
Stór borðsalur og fullbúin eldunaraðstaða er í brúnni. Í lúkar er eldunaraðstaða og svefnpláss er fyrir tvo.
Báturinn hefur þegar hafið veiðar.