Ný Bergey VE er í smíðum hjá skipasmíðastöðinni Vard í Aukra í Noregi fyrir Berg-Hugin, dótturfélag Síldarvinnslunnar. Gert er ráð fyrir að skipið verði afhent kaupanda hinn 1. október nk.

Frá þessu segir á heimasíðu Síldarvinnslunnar.

Þessa dagana hefur skipið verið í prufusiglingum og búnaður þess prófaður. Að sögn Guðmundar Alfreðssonar hafa allar prófanir gengið vel.

„Það var prufusiglt á laugardag og aftur á sunnudag. Á sunnudag var allur búnaður prófaður að undanskildum spilbúnaði. Næstkomandi föstudag verður síðan væntanlega farið í veiðarfæraprufu og þá verður allur búnaður sem tengist veiðarfærunum prófaður. Þetta hefur allt gengið mjög vel hingað til og ég á ekki von á öðru en að svo verði áfram,“ segir Guðmundur.

Bergey VE er systurskip Vestmannaeyjar VE sem kom ný til landsins í júlí. Skipasmíðastöðin Vard hefur verið að smíða sjö skip sömu gerðar fyrir íslensk útgerðarfyrirtæki. Skipin eru 28,9 metrar að lengd, 12 metrar að breidd og 611 brúttótonn að stærð.