Alls 19 íslensk skip náðu því marki að fiska fyrir meira en tvo milljarða króna hvert á nýliðnu ári. Eitt skipanna komst yfir fjóra milljarða og fjögur yfir þrjá milljarða.
Til samanburðar má nefna að árið 2010 fiskuðu ,,aðeins“ sjö skip fyrir meira en tvo milljarða króna.
Þetta kemur fram í samantekt Fiskifrétta sem birtist í blaðinu í dag og byggð er á upplýsingum sem blaðið aflaði sér frá útgerðum skipanna.
Þau fimm skip sem fiskuðu fyrir meira en þrjá milljarða á árinu 2011 eru Vilhelm Þorsteinsson EA (4.450 millj. kr.), Aðalsteinn Jónsson SU (3.700 millj. kr.), Huginn VE (3.200 millj. kr.), Guðmundur VE (3.080 millj. kr.) og Hákon EA (3.000 millj. kr.).
Sjá nánar upplýsingar um nítján efstu skipin í aflaverðmæti á árinu 2011 í Fiskifréttum.