Lokaniðurstöður starfshópa verkefnisins Auðlindin okkar verða kynntar í beinu streymi kl. 12.15. Verður streymt frá kynningunni og skýrslan Auðlindin okkar – sjálfbær sjávarútvegur gerð aðgengileg á sama tíma.

„Auðlindin okkar er opið og gagnsætt verkefni sem Svandís Svavarsdóttir matvælaráðherra setti af stað í maí 2022 með þátttöku fjölmargra sérfræðinga. Markmið verkefnisins er hagkvæm og sjálfbær nýting sjávarauðlinda í sátt við umhverfi og samfélag og byggir á þremur stoðum sjálfbærrar þróunar: umhverfi, efnahag og samfélagi," segir á heimasíðu matvælaráðuneytisins.

Eftir að skýrslan hefur farið í samráðsgátt stjórnvalda verður unnið nýtt frumvarp til nýrra heildarlaga um nýtingu og stjórnun nytjastofna sjávar. Kynning skýrslunnar og þeirra tillagna sem þar eru fram settar marka því ekki endalok vinnunnar, heldur upphaf að frekari umræðu og vinnu um málefnið svo sem í gegnum samráðsnefnd um sjávarútvegsstefnu og samráðsgátt stjórnvalda.

Beint streymi frá kynningunni má nálgast hér.