Landssamband smábátaeigenda skorar á sjórnvölda að grípa inn í til að flýta fyrir vaxtaleiðréttingu ólöglegra gengistryggðra lána, að því er fram kemur á vef LS.
Í ályktun sem samþykkt var á árlegum sumarfundi stjórnar LS sem var haldinn á Raufarhöfn 17. og 18. júlí sl. segir meðal annars: Fundur í stjórn Landssambands smábátaeigenda lýsir áhyggjum sínum yfir miklum seinagangi við vaxtaleiðréttingu ólöglegra gengistryggða lána. Tafirnar hafa leitt til stöðnunar útgerðaraðila og ójafnrar samkeppnisstöðu milli einstakra útgerða.
Einnig skorar stjórn LS á Umboðsmann Alþingis að framkvæma athugun á lögmæti þess að lána aðilum fé í erlendri mynt þegar tekjur viðkomandi eru í íslenskum krónum.