Formaður og framkvæmdastjóri Landssambands smábátaeigenda áttu sinn fyrsta fund við Svandísi Svavarsdóttur, nýjan sjávarútvegsráðherra, í gær. Tilefni fundarins var óska ráðherra til hamingju og velfarnaðar í starfi en við fundinn bættist við efni reglugerðar þar frá því 21. desember þar sem kemur fram ákvörðun um að skerða þorskveiðiheimildir til strandveiða stórlega.

Með þetta lýstu forsvarsmenn LS miklum vonbrigðum.

Í frétt á heimasíðu LS segir:

„Þann 21. desember sl. ákvað ráðherra með undirritun reglugerðar að skerða þorskveiðiheimildir sem ætlaðar eru til strandveiða næsta sumar og almenns byggðakvóta. Breytt reglugerð leiðir til þess að til strandveiða eru ætluð 8.500 tonn sem er 1.500 tonnum minna en ákveðið hafði verið. Á fundinum mótmælti LS ákvörðuninni harðlega. Sagði hana ganga þvert á þau markmið að tryggja 48 daga til strandveiða.  LS lagði áherslu á að strandveiðar væru þær veiðar sem yllu minnstu raski í hafrýminu og minnstu kolefnissótspori.  Auk þess hefðu þær reynst gríðarlega vel fyrir hinar dreifðu byggðir.“

LS treystir því að þessi ákvörðun verði endurskoðuð, „enda hér mikið alvörumál sem snertir um 700 útgerðir auk flest öll byggðarlög landsins,“ eins og segir í frétt sambandsins.