Fiskistofa hefur tekið saman yfirlit yfir afla fyrstu níu mánuði ársins í norsk-íslenskri síld, makríl og kolmunna. Það sem af er ári er afli í íslenskra skipa í þessum deilistofnum minni en á sama tíma í fyrra.

Ágæt aflabrögð í kolmunna

Það sem af er ári hafa íslensk skip veitt 163 þúsund tonn af kolmunna. Á sama tíma í fyrra var aflinn 188 þúsund tonn. Mestur afli á yfirstandandi vertíð er veiddur í lögsögu Færeyja eða 154,6 þúsund tonn og í íslenskri lögsögu 6,8 þúsund tonn. Aflahæsta skipið í kolmunna á ofangreindu tímabili er Beitir NK með 19,3 þúsund tonn en Börkur NK með 19,2 þúsund tonn.

Litlu minni makrílafli

Makrílvertíð er nánast lokið og var heildarafli íslenskra skipa á vertíðinni 163 þúsund tonn. Þetta er litlu minni afli en á vertíðinni 2015 þegar hann var 166 þúsund tonn. Íslensk skip fengu 151,5 þúsund tonn eða 89% aflans í íslenskri lögsögu en 6,8 þúsund tonn í grænlenskri lögsögu og 3,8 þúsund tonn á alþjóðlegu hafsvæði.

Aflahæsta skipið á makrílveiðunum á vertíðinni var Venus NS með 11,6 þúsund tonn. Næst kemur Víkingur AK með 9,6 þúsund tonn og Vilhelm Þorsteinsson EA með 9 þúsund tonn.

Síldarafli minni en á síðasta ári

Heildarafli íslenskra skipa á fyrstu níu mánuðum ársins í norsk-íslenskri síld er nokkuð minni en á síðasta ári. Íslensku skipin höfðu landað 25,3 þúsund tonn á yfirstandandi vertíð miðað við 32,7 þúsund tonn á sama tíma í fyrra. Þar af hafa íslensku skipin fengið 25,2 þúsund tonn úr íslenskri lögsögu eða 99,8% af afla úr norsk-íslenska síldarstofninum.