Undanfarna daga hafa verið fluttar fréttir af brottkasti við grásleppuveiðar. Sú mynd sem upp hefur verið dregin er ófögur og helst að skilja að grásleppukarlar standi baki brotnu í því að henda þorski í hafið, segir í frétt á vef Landssambands smábátaeigenda.
Og áfram segir: ,,Meðafli við grásleppuveiðar hefur þekkst allt frá upphafi og er óhjákvæmilegur fylgifiskur þessara veiða, sem flestra annarra. Þó að á blettum hafi nú í byrjun orðið vart við meiri þorsk á grásleppuslóðum er að öðru leyti ekkert óvanalegt við yfirstandandi vertíð.
Fróðlegt verður að vita hversu mikið togararallið nýafstaðna mældi af þorski á grásleppumiðunum við landið, sérstaklega í ljósi þess að ekki er vitað til að færa hafi þurft eitt einasta grásleppunet til að hægt væri að taka eitthvað af togunum í rallinu.”
Þá segir í fréttinni að um helgina hafi fiskistofustjóri skorað á sjávarútvegsráðherra að stöðva helst veiðarnar tímabundið. Með slíkri framkvæmd væri í raun verið að refsa öllum þeim sem stunda veiðarnar samkvæmt lögum og reglum. Í gær hefði svo verið frá því greint í fréttum útvarps að ólíklegt væri að sjávarútvegsráðuneytið myndi grípa til einhverra aðgerða og að það treysti Fiskistofu til að taka á málum ef hún teldi ástæðu til.