Dótturfyrirtæki Pipar\TBWA í Noregi, SDG\TBWA, hefur unnið alþjóðlega samkeppni um uppbyggingu á nýju vörumerki, staðfærslu og markaðssetningu á kanadískum sjávarútvegi. Verkefnið er unnið fyrir Atlantic Groundfish Counsil, samtök sjávarútvegsfyrirtækja á austurströnd Kanada.

„Þetta var mjög stór samkeppni nokkurra alþjóðlegra stofa og markaðsfyrirtækja. Ferlið stóð yfir í um sex vikur og mikið gleðiefni þegar stofan okkar var valin,” segir Valgeir Magnússon, stjórnarformaður Pipar\TBWA og framkvæmdastjóri SDG\TBWA í Noregi. Fréttir af sigri SDG\TBWA samkeppninni, hafa vakið athygli í Noregi og verið fjallað um það í norskum fjölmiðlum.

„Verkefnið var unnið í samvinnu milli stofanna okkar í Noregi og Íslandi ásamt TBWA í Kaupmannahöfn sem við vinnum einnig mikið með. Við höfðum á þessum tíma nýlokið við sameiginlega Evrópuherferð fyrir danska síld. Við hófum ferillinn með stórri stefnumótunarvinnu sem við héldum miðsvæðis fyrir sem flesta sem þurftu að koma að verkefninu og varð því Brussel fyrir valinu. Mikilvægt var að geta nýtt okkur net TBWA um alla Evrópu og Afríku í markaðssrannsóknum. Til að takast á við verkefnið skipti miklu máli reynsla frá verkefnum sem við höfðum unnið fyrir Samherja og markaðssetningu á bleikju í Bandaríkjunum, stefnumótun fyrir SFS ásamt vinnu fyrir Skagann 3X, Völku og fleiri aðila í þeim geira. Reynsla dótturfyrirtækis okkar, The Engine, skipti einnig sköpum í því að geta tekið verkefni sem þetta frá upphafi til enda á svo mörgum mörkuðum," segir Valgeir einnig um verkefnið.

„Það fyrsta sem er farið að sjást af því sem við erum að gera er herferð sem við erum núna að keyra í Svíþjóð fyrir fisktegund frá Kanada sem er mjög svipuð rauðsprettu. En vænta má að við getum sýnt verkefnið fljótlega en við höfum unnið að því í nokkra mánuði nú þegar," segir Valgeir.