Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, kynnti á fundi ríkisstjórnarinnar í morgun 15 aðgerðir á sviði landbúnaðar og sjávarútvegs til að bregðast við áhrifum COVID-19 veirunnar á þessar greinar.

Í frétt á vef Stjórnarráðsins segir að markmið aðgerðanna sé að „lágmarka neikvæð áhrif á íslenskan landbúnað og sjávarútveg til skemmri og lengri tíma, en um leið skapa öfluga viðspyrnu þegar þetta tímabundna ástand er gengið yfir. Aðgerðirnar eru eftirfarandi.“

Fiskifréttir sögðu frá því á fimmtudag að aðgerðapakki væri í undirbúningi hjá stjórnvöldum.

Hvað varðar sjávarútveg og fiskeldi eru aðgerðirnar þessar eins og sagt er frá þeim í frétt ráðuneytisins:

- Hlé á grásleppuveiðum heimilað

Komið til móts við grásleppusjómenn sem lenda í sóttkví eða einangrun varðandi lengd veiðitímabilsins. Ráðherra hefur undirritað breytingu á reglugerð um hrognkelsaveiðar 2020 sem heimilar hlé á grásleppuveiðum ef skipstjóri eða áhöfn þurfa að fara í sóttkví eða einangrun.

- Afgreiðslu rekstrarleyfa í fiskeldi flýtt og eftirlit og stjórnsýsla styrkt

Fiskeldi hefur vaxið mikið á undanförnum árum og var útflutningsverðmæti fiskeldis 25 ma.kr. í fyrra eða sem nemur tæplega 2% af heildarútflutningi. Samhliða miklum vexti greinarinnar undanfarin ár hefur málsmeðferð rekstrarleyfisveitinga vegna fiskeldis þyngst umtalsvert. Því er mikilvægt í samráði við Matvælastofnun að flýta afgreiðslu leyfa til fiskeldis enda gæti það á þessu ári og til framtíðar haft í för með sér mikla fjárfestingu hér á landi og ráðningu á fleira starfsfólki.

- Aukið fjármagn í hafrannsóknir

Öflugar hafrannsóknir eru meginforsenda þess að gera megi verðmæti úr sjávarauðlindinni og nýta hana með sjálfbærum hætti. Í samræmi við samstarfssáttmála ríkisstjórnarinnar verður veitt viðbótarfjármagn til að efla hafrannsóknir við Ísland. Við ráðstöfun þessa viðbótarfjármagns verður sérstaklega litið til þess að auka rannsóknir á loðnu en um mikla þjóðhagslega hagsmuni er að ræða en útflutningsverðmæti loðnu árin 2016-2018 var að meðaltali um 18 milljarðar króna. Aðgerðin er fjármögnuð með fjárfestingaátaki ríkisstjórnarinnar á þessu ári.

- Aukið svigrúm til að flytja aflaheimildir milli fiskveiðiára

Aðgerðin miðar að því að stuðla að sveigjanleika við veiðar og vinnslu en slíkt er mikilvægt í því tímabundna ástandi sem nú gengur yfir.

- Árskvótar deilistofna uppsjávarfisks gefnir út

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið mun hraða vinnu við útgáfu árskvóta til veiða úr þremur deilistofnum uppsjávarfisks, þ.e. síldar, kolmunna og makríls. Með því er stuðlað að auknum fyrirsjáanleika við þessar veiðar.

Undanþágur með ströngum skilyrðum

Þá segir jafnframt að hertar kröfur um samkomur fólks, fjarvera starfsmanna frá vinnu vegna sóttkvíar og einangrunar og aðrar ráðstafanir yfirvalda geta haft neikvæð áhrif á fyrirtæki sem sinna íslenskri matvælaframleiðslu. Heilbrigðisráðherra hefur, eftir samráð við sóttvarnalækni, almannavarnadeild ríkislögreglustjóra og Matvælastofnun, ákveðið að veita fyrirtækjum í þessum greinum undanþágu frá tilteknum ráðstöfunum að uppfylltum ströngum skilyrðum. Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið mun áfram fylgjast með þessari þróun í samvinnu við heilbrigðisyfirvöld og atvinnulífið.

"Eðli málsins samkvæmt breytist staðan hratt og mun atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið áfram fylgjast náið með þróun mála og grípa til frekari aðgerða sem nauðsynlegar verða," segir í niðurlagi fréttarinnar.