Margrét EA kom í gærmorgun til Neskaupstaðar með 1.300 tonn af íslenskri sumargotssíld. Þetta kemur fram á vef Síldarvinnslunnar sem tók aflann strax til vinnslu í fiskiðjuveri sínu.

„Þetta fékkst á sömu slóðum og veitt hefur verið á að undanförnu – í Jökuldýpinu. Aflinn fékkst í fimm holum. Við fengum fínt fyrst eftir að við komum út en síðan kaldaði og þá hvarf síldin. Við fengum svo fínt aftur í lokin,“ er haft eftir Hirti Valssyni skipstjóra sem segir aðeins þrjú skip hafa verið á miðunum; Margréti, Hákon og Jónu Eðvalds.

Vonast eftir loðnu á nýju ári

„Það eru flestir búnir með kvótann enda hefur veiðin almennt gengið prýðilega. Við fórum bara tvo túra og nú er þessu lokið hjá okkur. Þetta er sama góða síldin og hefur fengist að undanförnu þarna vestur frá. Hún er 300 grömm, átulaus og flott í alla staði. Við stoppum núna fram yfir áramót og spurningin er hvort farið verður á kolmunna eða loðnu eftir áramótin. Vonandi verður loðna,“ segir Hjörtur Valsson á svn.is.