Verið er að mála uppsjávarskipið Margréti EA 710 í litum Samherja í Skagen í Danmörku þar sem hefur verið að endurbótum á skipinu undanfarnar vikur vegna lögbundinna skoðana að því er segir á vefsíðu fyrirtækisins.

Margrét, sem áður hét Christina S, bættist í flota Samherja í mars síðastliðinn. Skipið var smíðað í Noregi árið 2008 og er 72 metra langt og 15 metra breitt.

Fljótlega á veiðar

„Margrét er vel búið skip á allan hátt og aðalvélin hefur aðeins verið keyrð í um 17.000 klukkustundir. Þrettán kælitankar eru í skipinu og taka þeir samtals liðlega tvö þúsund rúmmetra,“ segir á samherji.is.

Haft er eftir Hirti Valssyni skipstjóra að vinnunni í Skagen fer senn að ljúka og Margrét fari fljótlega á veiðar.

Skipstjórinn ánægður með litinn

Hjörtur Valsson, skipstjóri á Margréti EA. Mynd/Samherji

„Það er bara frábært að búið sé að mála skipið í litum Samherja, það var reyndar með rauðan skrokk en persónulegra finnst mér þessi dökkrauði litur Samherja fallegri. Ljósi liturinn tónar líka einstaklega vel við dökkrauða litinn,“ er mat Hjartar á litum Margrétar.

Hjörtur segir Margréti vera gott skip. „Það fer vel um mannskapinn og allur aðbúnaður er til fyrirmyndar. Tækjabúnaðurinn er sömuleiðis góður og vélin kraftmikil. Það er greinilegt að fyrri eigendur hugsuðu vel um skipið og Samherji hefur alla tíð hugsað vel um sín skip eins og við vitum,“ er haft eftir skipstjóranum á vef Samherja.