Jimmy Bjorøy útgerðarmaður fékk nú á dögunum afhentan nýjan Cleopatra 35 bát frá Bátasmiðjunni Trefjum í Hafnarfirði. Hann verður sjálfur skipstjóri á bátnum.
Nýi báturinn heitir Tomina og er 10.65 metrar á lengd og mælist 11 brúttótonn.
Báturinn er útbúinn til makríl og netaveiða. Handfærarúllur eru frá DNG. Netabúnaður kemur frá Rapp í Noregi.
Lest bátsins er sérútbúin til að lesta makríl um borð í tveimur aðskyldum rýmum sem auðveldar fiskdælingu úr lestinni. Lestin rúmar fimmtán 380 lítra kör.
Aðalvél bátsins er af gerðinni FPT C13; 520 hestöfl tengd frístandandi ZF325IV gír. Báturinn er útbúinn siglingatækjum af gerðinni Simrad og Olex. Báturinn er einnig útbúin með vökvadrifnum hliðarskrúfum að framan og aftan sem tengdar eru sjálfstýringu bátsins.
Lífbátur og annar öryggisbúnaður bátsins kemur frá Viking.
Stór borðsalur og fullbúin eldunaraðstaða er í brúnni. Svefnpláss er fyrir þrjá í lúkar.