Nú er verið að vinna makríl úr Heimaey VE og Sigurðu VE í Vestmannaeyjum og í Neskaupstað er verið að vinna afla úr Vilhelm Þorsteinssyni EA í fiskiðjuveri Síldarvinnslunnar í Neskaupstað.

Fiskurinn úr Vilhelm er mjög góður og er að mestu heilfrystur, segir á heimasíðu Síldarvinnslunnar. Gert er ráð fyrir að vinnslu úr Vilhelm ljúki um hádegisbil og þá verður hafist handa við að þrífa fiskiðjuverið eins og gert er með reglubundnu millibili á vertíðum. Barði NK mun síðan koma til Neskaupstaðar í dag með 1.340 tonna makrílfarm og mun vinnsla á honum hefjast strax að þrifum loknum í kvöld. Þá er Hákon EA að landa rúmlega 600 tonnum af frystum makríl í frystigeymslur Síldarvinnslunnar í dag.

Skipin sem landa hjá Síldarvinnslunni og eru í veiðisamstarfi toguðu í gær í 8-11 tíma og var afli þeirra misjafn eða frá 130 tonnum og upp í 480 tonn. Alls var dælt tæplega 1.000 tonnum um borð í Barða í gærdag.

Geir Sigurpáll Hlöðversson, rekstrarstjóri fiskiðjuversins, segir að fiskurinn, sem nú er verið að vinna úr Vilhelm, sé sá besti sem borist hefur á vertíðinni. „Í honum er lítil áta og hann er mjög gott hráefni. Þetta er besti farmurinn sem við höfum fengið til vinnslu á vertíðinni og erum við að heilfrysta á fullu. Það er átumagnið sem skiptir mestu. Þegar átan minnkar verður hráefnið betra. Vonandi verður þetta svona áfram,“ segir Geir Sigurpáll.