Tvö skip lestuðu mjöl í Neskaupstað um helgina og eitt skip að auki lestaði lýsi. Mjölskipin tóku 1.200 tonn hvort og nú er verið að skipa út 2.000 tonnum í lýsisskipið. Verðmæti afurðanna, sem þessi þrjú skip taka, er um 1,5 milljarður króna. Það hafa verið 21 mjölútskipun í Neskaupstað það sem af er ári auk þess sem verulegt magn hefur verið flutt á bílum til fóðurverksmiðjunnar Laxár á Akureyri. Tvær 1.200 tonna mjölsútskipanir eru síðan á dagskrá síðar í þessum mánuði. Í Neskaupstað er búið að skipa út 27.700 tonnum af mjöli og 11.400 tonnum af lýsi það sem af er árinu.

Heimasíða Síldarvinnslunnar ræddi við Hafþór Eiríksson, verksmiðjustjóra fiskimjölsverksmiðju Síldarvinnslunnar í Neskaupstað og spurði hvort yfirstandandi ár væri annasamt í fiskimjölsverksmiðjunni.

145.000 tonn af hráefni

„Já, það má svo sannarlega segja. Á fyrstu níu mánuðum þessa árs hefur verksmiðjan hér í Neskaupstað tekið á móti 145 þúsund tonnum af hráefni og það er jafn mikið og báðar verksmiðjur fyrirtækisins tóku á móti allt árið í fyrra. Verksmiðjurnar tvær, hér í Neskaupstað og á Seyðisfirði, hafa tekið á móti 237 þúsund tonnum það sem af er þessu ári og þar af er hlutur Seyðisfjarðarverksmiðjunnar 92 þúsund tonn. Þetta ár verður svo sannarlega stórt hjá okkur í þessum iðnaði. Hjá okkur hér í Neskaupstað hefur ekki einungis mikið verið að gera í framleiðslunni heldur hefur einnig verið unnið að framkvæmdum við verksmiðjuna. Verið er að stækka verksmiðjuna þannig að hún mun afkasta 2.000 tonnum á sólarhring og að auki er byggð lítil verksmiðja sem afkastar 380 tonnum. Nú fer að líða að því að litla verksmiðjan verði prufukeyrð en stækkunin verður vart tilbúin fyrr en í janúarmánuði. Hráefnið sem verksmiðjan á Seyðisfirði tekur á móti er fyrst og fremst kolmunni og loðna, en verksmiðjan í Neskaupstað tekur á móti kolmunna og að auki loðnu, síld og makríl frá fiskiðjuveri Síldarvinnslunnar. Það hefur verið mikil vinnsla í fiskiðjuverinu og allur afskurður þaðan og allt sem flokkast frá kemur til vinnslu í verksmiðjunni,“ segir Hafþór.