Grásleppuveiðar hófust 20. mars sl. Hafrannsóknastofnun lauk útreikningum úr mælingum rannsóknaleiðangurs sem fram fór í byrjun mars. Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu hefur nú til skoðunar bréf stofnunarinnar þar sem gerð er grein fyrir niðurstöðum mælinga á stærð veiðistofns grásleppu. Hafrannsóknastofnun leggur til að grásleppuafli fari ekki umfram 6.355 tonn, sem er 445 tonna minnkun milli ára eða 6,6%.
Ráðuneytið óskaði eftir sjónarmiðum LS á tillögum Hafró. Félagið hefur svarað erindinu þar sem lagt er til að veiðidagar á yfirstandandi grásleppuvertíð verði 36 sem er 4 daga viðbót við veiðitíma í fyrra. Í rökstuðningi LS er meðal annars bent á eftirfarandi: Færri stunda veiðar nú en í fyrra; samdráttur í veiðum milli ára; lakari útbreiðsla á gjöfulum veiðisvæðum; og markaðslegar aðstæður.
Frá þessu er skýrt á vef LS.