Stjórn Landssambands smábátaeigenda skorar á sjávarútvegsráðherra að auka nú þegar leyfilegan heildarafla á skötusel um 1.000 tonn. Ennfremur að hann hvattur til að breyta reglum um meðafla við grásleppuveiðar þannig að skötuselur teljist ekki til kvóta við þær veiðar.
Þetta kemur fram í ályktun sumarfundar stjórnar LS sem haldinn var í Grundarfirði í síðustu viku. Þar segir ennfremur:
,,Stóraukin útbreiðsla skötusels hefur leitt til vandamála við grásleppuveiðar. Skötuselur, sem er ránfiskur, ásælist grásleppuna og lendir í auknum mæli sem óæskilegur afli við veiðarnar. Flestir grásleppubátar hafa ekki veiðiheimildir í skötusel enda hefur það verið nánast óþekkt að hann veiðist í grásleppunet. Nú hefur hins vegar orðið breyting á og því brýnt að taka á þeim vanda með því að hann teljist ekki til kvóta við þann veiðiskap.
Ennfremur er bent á að skötuselur er ránfiskur og því réttlætanlegt að veiði á honum sé töluvert umfram það sem Hafrannsóknastofnun leggur til.“
Nánar er fjallað um málið á vef LS, HÉR