Nýverið fundaði LS með Steingrími J. Sigfússyni atvinnuvega- og nýsköpunarráðherra þar sem fram kom að félagsmenn ættu í gríðarlegum erfiðleikum að nýta veiðiheimildir í þorski vegna mikillar ýsu á miðunum.

Hringlað hefði verið í reglum skiptimarkaðarins þannig að þar væri nú enga ýsu að fá.  Verðmæti væru öll úr skorðum.  Ekki væri hægt að fá ýsu í jöfnum skiptum fyrir þorsk, verðmiðinn nú væri 3 tonn af þorski fyrir 2 tonn af ýsu og ekki væri hægt að fá leigða ýsu öðru vísi en að greiða okurverð fyrir.  Óbreytt ástand mundi leiða til þess að ekki yrði hægt að stunda þorskveiðar, veiðar mundu stöðvast.

LS hvatti ráðherra til að úthluta nú þegar meiri ýsuheimildum.  Hægt væri að hafa ívilnunarkerfi á viðbótinni, þ.e. hún mundi nýtast þar sem þörfin væri mest, með veiðum dagróðrabáta á línu.

Í frásögn á vef LS kemur fram að ráðherra hafi vakið athygli á að ráðuneytið hefði látið skoða þessi mál sérstaklega fyrir LS á síðasta ári.  Það hefði ekki leitt til breytinga á ráðgjöf.  Hann hefði lýst sig reiðubúinn að skoða málið á nýjan leik enda væri honum vel kunnugt um vandamálið.