Loðnuvinnslan á Fáskrúðsfirði skrifaði í dag undir samning um kaup á uppsjávarskipinu Asbjørn HG-265 frá Danmörku og jafnframt sölu á uppsjávarskipinu Hoffelli.
Frá þessu er greint á fésbókarsíðu fyrirtækisins.
Þar segir að bæði skipin eru komin í slipp í Noregi. Asbjørn er 14 ára gamalt skip, 7 árum yngra en Hoffell. Afhending fer fram á næstu dögum.
Nýtt Hoffell er með 2.530 rúmmetra lest á móti 1.650 rúmmetra í eldra skipi og er 53% stærra. Skipið er með 8.100 hestafla vél á móti 5.900 hestöflum og togkraftur er 40% meiri.

© Þorgeir Baldursson (.)
„Mjög góð aðstaða er fyrir áhöfn. Ljóst er að þessi kaup er mikið framfaraspor fyrir Loðnuvinnsluna og byggðarlagið. Þetta er nauðsynleg breyting þar sem lengra er að sigla á makrílmiðin en áður og langt að sækja síld, kolmunna og loðnu til hrognatöku. Hluthöfum, starfsmönnum LVF og íbúum á Fáskrúðsfirði er óskað til hamingju með þetta stóra skref í atvinnusögu bæjarins,“ segir í frétt Loðnuvinnslunnar.