Hjálmar ehf., dótturfélag Loðnuvinnslunnar á Fáskrúðsfirði, hefur keypt línubátinn Óla á Stað GK af Stakkavík í Grindavík. Báturinn, sem fengið hefur nafnið Sandfell SU 75, kemur til heimahafnar í dag. Með í kaupunum fylgir 1.164 tonna kvóti í krókaaflamarkskerfinu en á móti lætur Loðnuvinnslan frá sér 200 tonna kvóta í aflamarkskerfinu.
„Tilgangurinn með kaupunum er fyrst og fremst sá að styrkja okkur í bolfiski og að auki hjálpar það markaðslega að geta boðið upp á línufisk auk trollfisksins,“ segir Friðrik Mar Guðmundsson framkvæmdastjóri Loðnuvinnslunnar segir í samtali við Fiskifréttir.
Móttökuathöfn verður í Fosshótelinu á Fáskrúðsfirði frá klukkan 17-19 í dag og eru bæjarbúar boðnir velkomnir að skoða bátinn.