Hafrannsóknastofnun mælir með því að loðnukvótinn verði aukinn um að minnsta kosti 100 þúsund tonn eða úr 260 þús. tonnum í 360 þús. tonn. Aukningin gæti orðið meiri því stofnunin ætlar að endurtaka mælinguna frá Kolbeinseyjarhrygg og austur að Langanesi.

Hér fer að eftir í heild frétt frá Hafrannsóknastofnun sem var að berast:

„Í kjölfar mælinga á stærð loðnustofnsins í september og október síðastliðnum lagði Hafrannsóknastofnun til að heildaraflamark vertíðarinnar yrði 260 þúsund tonn. Enda þótt endanlegum mælingum á stærð veiðistofns loðnu ljúki ekki fyrr en í næstu viku telur Hafrannsóknastofnun rétt að fram komi að mælingin mun leiða til þess að stofnunin leggi til aukningu í aflamarki fyrir vertíðina 2014/2015. Miðað við varfærnar forsendur á þessari stundu, mun sú aukning að minnsta kosti verða um 100 þús. tonn.

Loðna hefur fundist mjög víða í leiðangrinum á öllu rannsóknasvæðinu nema úti fyrir Austurlandi og samanborið við mælingar fyrri ára er útbreiðslan í ár meiri en sést hefur um langt árabil. Mæliskekkja er há í þeim mælingum sem lokið er og því mun rannsóknaskipið Árni Friðriksson endurtaka mælingar á svæðinu frá Kolbeinseyjarhrygg og austur að Langanesi. Haldist veður áfram þokkalegt á svæðinu má gera ráð fyrir að þeim mælingum ljúki fyrri hluta næstu viku.

Hafrannsóknastofnun mun veita ráð um aflamark að afloknum leiðangrinum og miðað við ofangreindar forsendur gæti það orðið að viku liðinni.“