Rólegt hefur verið yfir loðnuveiðum frá því að skip HB Granda fór til veiða norður af Vestfjörðum sl. laugardag. Aðeins er heimilt að veiða loðnu í nót innan íslenskrar lögsögu á þessum slóðum og hefur það torveldað veiðarnar að loðnan stendur djúpt og er dreifð í gisnum torfum. Ingunn AK var nú í morgun komin með um 430 tonna afla og Lundey NS var að koma á miðin eftir að hafa farið með nótina til viðgerðar á Ísafirði, að því er fram kemur á heimasíðu HB Granda.
Veiðiferð Ingunnar og Lundeyjar hófst reyndar 18. nóvember sl. en vegna óveðurs á miðunum leituðu skipin vars á Ísafirði þar sem þau lágu í höfn þar til sl. laugardag. Á sunnudeginum fékk svo Ingunn um 250 tonna afla og Lundey um 100 tonn áður en nótin rifnaði.
Guðlaugur Jónsson, skipstjóri á Ingunni, sagði í samtali við heimasíðuna nú í morgun að skipin væru stödd norður af Halanum eða um 60 mílur NNV af Straumnesi.
,,Það er lítill kraftur í þessu og það er helst að hægt sé að kroppa eitthvað upp eftir að það dimmir og þar til að það birtir af morgni. Loðnan, sem við fengum í nótt, var heldur smærri en sú sem við fengum í fyrrinótt. Þá var stærðin um 37-40 stykki í kílóinu sem þykir mjög gott,“ sagði Guðlaugur en hann reiknaði með því að veiðum yrði haldið áfram fram á kvöld ef veður leyfði en spáð væri kaldaskít þegar liði á daginn. Í kvöld verður stefnan svo sett á Vopnafjörð þar sem allt er klárt til að taka á móti fyrsta loðnuaflanum á vertíðinni.