Atvinnuvegaráðuneytið hefur auglýst eftir umsóknum um leyfi til hrefnuveiða á árinu 2013. Frestur til að skila inn umsóknum rennur út 12. apríl.

Skilyrði fyrir veitingu leyfa til hrefnuveiða eru eftirfarandi:

  1. Að minnsta kosti einn úr áhöfn hafi reynslu af hrefnuveiðum. Við mat á því hvort aðili hafi reynslu af hrefnuveiðum er sú krafa gerð að aðili hafi a.m.k. verið samfellt í þrjá mánuði skytta á hrefnuveiðibát. Heimilt er Fiskistofu að meta jafngilda annarskonar reynslu eða þekkingu svo að hún fullnægi áskilnaði skv. þessari grein.
  2. Skyttur sem annast veiðar og aflífun dýra skulu hafa sótt viðurkennt námskeið í meðferð skutulbyssa og sprengiskutla og í aflífunaraðferðum við hvalveiðar. Auk þessa skal skytta hafa fullnægjandi skotvopnaleyfi.

Sjá nánar http://www.atvinnuvegaraduneyti.is/utgafa/frettir/nr/7492