Eftir að loðnuleitarleiðangrinum Hafrannsóknastofnuna lauk í gær fór rannsóknarskipið Árni Friðriksson í síldarleit. Leitað er við kantinn austur af landinu þar sem togarinn Ásgrímur Halldórsson byrjaði í loðnuleiðangrinum í liðinni viku.

Að sögn Guðmundar J. Óskarssonar, sviðsstjóra uppsjávarsviðs hjá Hafrannsóknastofnun er reiknað með að leit Árna Friðrikssonar standi í um tvo sólarhringa.

„Hann ætlar að leita að íslenskri sumargotssíld þar. Þetta er við lögsögumörkin, í vestanverðu Noregshafi,“ segir Guðmundur.

Blá línan á þessu skjáskot af vefsíðu Hafró sýnir leitarferil Árna Friðrikssonar.