Landssamband smábátaeigenda styður frumvarp atvinnuveganefndar um strandveiðar sem liggur fyrir Alþingi. Þetta lá fyrir eftir stjórnarfund sambandsins á föstudag. Fyrirferðamest á dagskrá fundarins voru veiðigjöld og strandveiðar.
Á vef LS segir að afar skiptar skoðanir hafi verið um þær breytingar sem frumvarpið felur í sér á stjórnun veiðanna. Stjórnarmenn voru sammála um að 48 daga kerfi sem boðið væri upp á myndi bæta fyrirkomulag strandveiða að því tilskyldu að tryggt væri að dagarnir héldu - að ekki kæmi til stöðvunar veiða ef afli stefndi í að fara fram úr því sem ætlað væri.
Niðurstaða umræðunnar varð eftirfarandi ályktun sem birt er á heimasíðu LS:
Stjórn LS styður frumvarp atvinnuveganefndar um strandveiðar.
Það er afar jákvætt fyrir framþróun strandveiða að hægt verði að velja daga. Í frumvarpinu er gert ráð fyrir að veiðidagar til strandveiða árið 2018 verði 48, skipt jafnt á strandveiðimánuðina maí, júní, júlí, ágúst.
Stjórn LS mótmælir þó ákvæði frumvarpsins um heimild Fiskistofu til að stöðva veiðar stefni heildarafli í að fara umfram heildaraflaviðmiðun. Aðstæður á hinum 4 veiðisvæðum strandveiða er mjög mismunandi hvað fiskgengd snertir.
Þannig að tilraunin verði marktæk er nauðsynlegt að tryggja 12 veiðidaga á bát í hverjum mánuði á öllum veiðisvæðum.
LS leggur áherslu á að ufsi við strandveiðar telji ekki til heildaraflaviðmiðunar og að ekki verði skylt að landa honum sem VS-afla.