Grænlenska uppsjávarskipið Polar Ammassak kom með 1.450 tonn af loðnu til Neskaupstaðar í morgun.

Síldarvinnslan segir frá þessu á heimasíðu sinni, en skipið er að hluta i eigu Síldarvinnslunnar.

Þetta annar loðnufarmur skipsins frá áramótum, en Polar Amassak er eina íslenska skipið sem nú er á loðnuveiðum.

Guðmundur Hallsson skipstjóri segir loðnuna aðallega hafa fengist 50-60 mílur austur af Langanesi.

„Aflinn fékkst í fimm holum. Í fyrsta holinu fengust 100 tonn en síðan var þetta stigvaxandi og í síðasta holinu fengust 400 tonn. Við þurftum svolítið að hafa fyrir því að finna loðnuna en síðan fundum við þarna góðan blett sem við vorum á. Þarna var þokkalega mikið að sjá og loðna á 7- 8 mílna svæði. Það var virkilega mikið líf þarna og mikið af hval. Hafrannsóknaskipið Árni Friðriksson, sem er í loðnuleit, var einmitt kominn á þetta svæði. Loðnan sem þarna fékkst var hin þokkalegasta, 35 – 40 stk. Í kílói. Þessi loðna fer til framleiðslu á mjöli og lýsi hjá Síldarvinnslunni. Við komum í land vegna veðurs. Það var komin bræla og ljóst er að það verður bræla að minnsta kosti fram á miðvikudag. Við munum bíða eftir að veður lægji og þá verður haldið áfram af fullum krafti. Ég er bjartsýnn og geri ráð fyrir fínni loðnuvertíð,“ er haft eftir Guðmundi á heimasíðu Síldarvinnslunnar.