Hafrannsóknastofnun hefur gefið út ráðleggingar um að leyfðar verði veiðar á 698 tonnum af rækju við Snæfellsnes á tímabilinu frá 1. maí 2017 til 15. mars 2018.

Stofnvísitala rækju við Snæfellsnes var undir meðallagi og mældist minna af rækju í Breiðafirði en undanfarin þrjú ár. Lítið var af fiski á slóðinni.

Nánari upplýsingar um niðurstöður stofnmælingarinnar, veiðar og ráðgjöf má sjá á vef Hafrannsóknastofnunar.