Síldarkvóti Síldarvinnsluskipanna langt kominn og gert er ráð fyrir að gert verði hlé á veiðunum fram í desember.

Þetta kemur fram á vef Síldarvinnslunnar. Áfram sé unnin af fullum krafti íslensk sumargotssíld í fiskiðjuveri fyrirtækisins í Neskaupstað. Margrét EA hafi komið með 1.300 tonn að vestan í fyrradag og Beitir NK með um 1.000 tonn í gær.

Haft er eftir Geir Sigurpáli Hlöðverssyni, rekstrarstjóra fiskiðjuversins, að vel gangi að vinna síldina. Um þessar mundir sé mest af henni heilfryst og framleidd svonefnd samflök eða flapsar.

„Síldin er hið besta hráefni í alla staði. Þessi framleiðslutörn er orðin all löng. Fyrsti síldarfarmurinn að vestan barst til okkar þann 24. október en þá var veiðum á norsk-íslenskri síld austur af landinu að ljúka. Nú eru komin til okkar um 16.000 tonn af íslenskri sumargotssíld,“ segir Geir Sigurpál á svn.is.

Einnig er rætt við Tómas Kárason, skipstjóra á Beiti, sem þá var við Papey. „Þessi túr gekk býsna vel. Við fengum aflann, um 1000 tonn, í þremur holum um 70 mílur suðvestur af Malarrifi. Þetta er sama góða síldin og verið hefur og þetta er síðasti síldartúr hjá okkur í bili,“ er haft eftir Tómasi.