Ísfisktogarinn Bergur VE landaði fullfermi í Neskaupstað síðastliðinn sunnudag. Aflinn var þorskur og ýsa. Vestmannaey VE kom svo með fullfermi, mest þorsk til Eyja í morgun. Þetta kemur fram á vef Síldarvinnslunnar.

„Við vorum á Glettinganesflakinu og þar var ágætis kropp. Fiskurinn sem þarna fékkst var líka mjög góður. Í túrnum gerði suðaustanbrælu og þá dró svolítið úr veiðinni. Eftir löndun í Neskaupstað héldum við aftur á svipaðar slóðir, tókum þrjú hol en síðan var haldið suður fyrir land á Ingólfshöfðann,“ segir Ragnar Waage Pálmason skipstjóri á Bergi.

„Nú er ekki eitt einasta skip að botnfiskveiðum á austursvæðinu enda bæði Ljósafell og Gullver í slipp en þeir eru þarna venjulega. Togararnir eru mikið í ufsaleit fyrir vestan og það hefur verið ágæt veiði á Halanum. Þetta er allt öðruvísi en í fyrra því þá voru um þetta leyti ársins 20 – 30 togarar fyrir austan í þokkalegri veiði en fiskurinn var auðvitað í síldinni,“ bætir Ragnar síðan við á svn.is.

Því næst segir frá því að Vestmannaey VE hafi komið til löndunar í Eyjum í morgun.

„Við vorum á Víkinni og á Ingólfshöfðanum og vorum að koma til Eyja með fullfermi. Það var leiðinlegt veður í túrnum, einkum til að byrja með. Þarna voru 7 – 8 metrar en alltaf fiskur,“ er haft eftir Agli Guðna Guðnasyni, skipstjóra á Vestmannaey. Aflinn hafi langmest verið þorskur.

„Þetta er fyrsti túrinn á nýju kvótaári og það verður ekki annað sagt en að þetta nýja ár fari bara vel af stað. Við reiknum með að halda til veiða á ný strax að löndun lokinni,“ segir Egill Guðni á vef Síldarvinnslunnar.