Vinnsla á makríl og síld er hafin af fullum krafti í fiskiðjuveri Síldarvinnslunnar í Neskaupstað og gengur vel. Beitir NK kom með 450 tonn af blönduðum afla til vinnslu í gær en áður hafði álíka farmur úr Berki NK verið unninn. Makríllinn er hausskorinn, slógdreginn og frystur en síldin er flökuð og fryst, að því er fram kemur á vef Síldarvinnslunnar
Að sögn Jóns Gunnars Sigurjónssonar verksmiðjustjóra er hér um gott hráefni að ræða og ljóst að stærri makríll en sá sem veiddist í upphafi vertíðar er að ganga á miðin við landið.
Jóni Gunnari líst vel á vertíðina og er þess fullviss að hún sé hafin fyrir alvöru og samfelld vinnsla sé framundan.