Beitir kom til hafnar í gærmorgun með 700 tonna afla og Börkur í nótt með um 540 tonn. Síldarvinnslan hf. á Neskaupstað greinir frá þessu og vitnar í Sturlu Þórðarson, skipstjóra á Beiti.

Hann segir að sáralítið af kolmunna hafi verið að sjá. „Við tókum fjögur hol á Rauða torginu og austan við það og þetta var ósköp slakt.“

Hálfdan Hálfdanarson, skipstjóri á Berki, tekur undir með Sturlu. „Það var ansi lítið að sjá þarna og aflinn er ekki mikill eftir sex daga. „Í fyrra komu ágætir dagar á þessum slóðum í júlímánuði en kolmunninn hagar sér með öðrum hætti í ár og virðist ekki þétta sig. Allavega hafa ekki komið góðir veiðidagar ennþá núna,“ segir Hálfdan.