Halldór Benóný Nellett, fyrrverandi skipherra hjá Landhelgisgæslunni, minnir á að í dag eru 51 ár liðið frá því varðskipsmenn á Ægi notuðu fyrst togvíraklippurnar í þorskastríðunum á árunum 1972 til 1976. Í færslu á Facebook segir hann:

„Þvílík guðslukka að árið var 1972 en ekki 2023.

Núna þegar við Íslendingar erum að drukkna í reglugerðarfargani og endalausum nefndarskipunum gæti ég vel ímyndað mér að atburðarrásin yrði eitthvað á þessa leið í dag ef svipað kæmi uppá!

Fyrir notkun varðskipsmanna með togvíraklippur yrði að leita formlegs leyfis frá dómsmálaráðuneytinu.

Þar á bæ myndi enginn þora að taka ábyrgð á leyfi til togvíraklippinga.

Málið hefði verið sent í einhverja úrskurðarnefnd sem færi með málið í umhverfismat og endirinn eflaust sá að algjörlega ótækt væri að skera veiðarfæri frá skipum og skilja þau eftir út um allan sjó.

Málið færi síðan eflaust líka fyrir einhverja öryggisnefnd sem myndi komast að þeirri niðurstöðu að klippurnar væru stórhættulegar, bæði áhöfnum varðskipa og togara þegar togvírar væru klipptir í sundur. Togvírar slægjust í allar áttir og gætu slasað og jafnvel drepið fólk.

Svo að endingu færi málið fyrir fagráð sem yrði sett á laggirnar sem væri fullt af vel menntuðum gáfumönnum með fjöldann allan af háskólagráðum en ættu það örugglega sameiginlegt að enginn þeirra hefði nokkurn tíma migið í saltan sjó og er ég nokkuð viss um niðurstöðuna þar líka.“

Halldór segir í færslunni að allar þessar nefndir og ráð hefðu kostað okkur skattgreiðendur fúlgur fjár og niðurstaðan sú að togvíraklippur hefðu aldrei verið leyfðar.

Hann segir að það hafi berlega komið í ljós að togvíraklippurnar skiptu sköpum í þorskastríðunum frá 1972-1976, segja má að klippurnar hafi lagt grunninn að yfirráðum Íslendinga yfir fiskimiðunum.

„Meðfylgjandi mynd tók Jón Páll Ásgeirsson um borð í varðskipinu Baldri af undirrituðum þegar verið var að ganga frá togvíraklippunum 1. júní 1976 þegar þorskastríðunum lauk.

Guðmundur heitinn Kjærnested sem var skipherra á Ægir sagði svo frá fyrstu klippingunni 5. September 1972:

„Varð mikið uppistand meðal bresku togaranna sem þarna voru að veiðum um 22 sjómílur innan nýju 50 mílna markanna. Allir hífðu upp trollin og komu siglandi á fullri ferð. Við á Ægi fórum hring um óþekkta togarann og komum nærri stjórnborðs skuthorni hans. Áhöfnin stóð á bátaþilfari og skipverjar köstuðu kolamolum og alls kyns rusli yfir í varðskipið. Einn skipverja á togaranum kastaði stórri brunaöxi sem fór í sjóinn á milli skipanna.““