Kjarnorkuknúinn bandarískur kafbátur, USS New Hampshire, er í stuttri þjónustuheimsókn í íslensku landhelginni í dag. Varðskipið Þór fylgir kafbátnum um landhelgina og í Stakksfjörð, þar sem fram fara áhafnaskipti og önnur þjónusta við kafbátinn.

Landhelgisgæsla Íslands leiðir framkvæmd heimsóknarinnar í nánu samstarfi við embætti ríkislögreglustjóra, Geislavarnir ríkisins og utanríkisráðuneytið í samræmi við settar verklagsreglur.

Þetta er í fjórða sinn sem kjarnorkuknúinn kafbátur bandaríska sjóhersins kemur í þjónustuheimsókn í íslenska landhelgi eða frá því að utanríkisráðherra tilkynnti 18. apríl á síðasta ári að slíkum kafbátum yrði heimilað að hafa stutta viðkomu úti fyrir ströndum Íslands til að taka kost og skipta út hluta áhafnar. USS New Hampshire er orrustukafbátur af Virginia-gerð og slíkir kafbátar bera ekki kjarnavopn.