Einungis eitt mál var á dagskrá hluthafafundur Síldarvinnslunnar hf. sem haldinn var í Safnahúsinu í Neskaupstað og með rafrænum hætti gegnum vefstreymi. Málið sem var til afgreiðslu var kaupin á Vísi hf. Í tilkynningu frá Síldarvinnslunnin segir að á fundinum hafi ítarlega verið farið yfir hvernig kaupin fara fram og hvaða möguleika þau skapa.

Tillaga um kaupin var síðan samþykkt samhljóða með 89,51% greiddra atkvæða en á fundinn voru mættir handhafar 89,54% hluta í Síldarvinnslunni.