Kári Stefánsson, forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar, mun halda ræðu á mótmælum strandveiðimanna á Austurvelli á laugardaginn.
Þetta kemur fram í færslu Kjartans Páls Sveinssonar, formanns Strandveiðifélags Íslands, á Facebook.
„Ég legg til að mæta í sjóstökkum, jafnvel þótt heitt sé í veðri. Það lítur flott út fyrir sjónvarpsmyndavélarnar,“ brýnir Kjartan fyrir félögum í opnum spjallhópi á Facebook sem ber nafnið Strandveiði og ufsaveiðispjallið.
Hvatti til aðgerða á Sjómannadaginn
Ræða Kára Stefánssonar á Sjómannadaginn fyrir rúmum mánuði vakti mikið umtal.
„Það er kominn tími á sjómannabyltingu í íslensku samfélagi,“ sagði Kári meðal annars og hvatti sjómenn til aðgerða. „ Þið verðið að skipuleggja ykkur og hefja kraftmikla baráttu. Þið verðið að kasta blöðrum fullum af rauðri málingu í þær stofnanir sem standa í vegi ykkar annað hvort symbólískt eða raunverulega. Þið verðið að hefja upp raust sem glymur í öllum krókum og kimum þessa samfélags,“ sagði Kári 4. júní síðastliðinn.
Sætir fyrir fréttamenn
Einnig mun tónlistarmaðurinn og Kristján Kristjánsson, KK, koma fram á mótmælunum og flytja lög.
Í fyrrnefndri færslu á Facebook segir Kjartan Páll að mikilvægt sé að menn haldi sig við málefnið - sem sé að tryggja mannsæmandi strandveiðikerfi.
„Ég held að þetta verði ekki vettvangurinn til að persónugera vandann, þó við séum reið, frekar að koma okkar sjónarhorni á framfæri,“ skrifar Kjartan Páll og lýsir síðan fyrirhuguðum aðgerðum eftir að formlegri dagskrá lýkur.
„Að dagskrá lokinni stillum við okkur í röð fyrir framan alþingishúsið, allir í sjóstökkum, og verum sætir fyrir fréttamenn,“ segir í færslu formanns Strandveiðifélags Íslands.