Kap VE 4, skip Vinnslustöðvarinnar í Vestmannaeyjum, varð fyrst íslenskra skipa til að hefja makrílveiðar á þessu ári. Skipið landaði um 200 tonnum síðastliðinn föstudag og í byrjun vikunnar 250 tonnum af makríl og einhverju af síld. Jón Atli Gunnarsson skipstjóri kveðst ætla að leyfa sér að vera bjartsýnn á veiðarnar á þessu ári.

„Þetta er svona með fyrra fallinu sem við byrjum á makríl miðað við undanfarin ár. Við fórum reyndar fyrir sjómannadag árið 2011. Þá partrolluðum við með gamla Ísleifi, Kap og Sighvati Bjarnasyni. Við byrjuðum ekki fyrr en um mánaðamótin júní/júlí í fyrra þótt við hefðum viljað byrja fyrr. Á þessum tíma var orkupakki 3 í lás inni á Alþingi og ekki hægt að afgreiða makrílfrumvarpið fyrr en 28. júní. Það er umhugsunarefni hvort ekki hafi farið ansi mikil verðmæti fram hjá okkur vegna þessa,“ segir Jón Atli.

Allt upp í 600 gramma fiskur

Kap hóf makrílveiðar fyrir réttri viku. Kastað var um miðnótt um 30 sjómílur suðaustur af Vestmannaeyjum og dregið í um tvo og hálfan tíma. Um 70 tonn fengust af óblönduðum makríl. Kastað var að nýju á svipuðum slóðum og fékkst þá síldarblandaður afli. Jón Atli segir mikið um dreifða síld við Suðurlandið. Menn reyni að forðast hana eins og hægt er. Hann segir að þó veiðin sé ekki mikil einmitt núna henti það vel að stutt er í land. Því lengra sem haldið er frá heimahöfn því meiri þarf veiðin að vera.

„Makríllinn sem við fengum þarna var mjög stór og góður. Meðalvigtin var 470 grömm og við vorum að sjá allt upp í 600 gramma makríl. Við hefðum líka viljað sjá smærri makríl í aflanum til þess að fullvissa okkur um að nýliðunin sé í lagi.“

Jón Atli segir kannski ekki mikið að marka veiðarnar nú þar sem svo skammt er liðið á vertíðina. Nú hafa bæst við fleiri skip á þessar veiðar, m.a. Huginn VE, Víkingur AK og Venus NK. Menn eru að skima og skoða miðin. Víkingur leitaði til að mynda austur eftir öllu landgrunninu og langt út í haf. Þetta sé því að fara í gang en engin kraftveiði sé hafin.

Á eftir að færast kraftur í þetta

„Ég á von á því að það færist meiri kraftur í þetta þegar nær dregur mánaðamótum. Þá verða líka væntanlega komin fleiri skip á þessar veiðar.“

Jón Atli kveðst telja að það skýrist ekki almennilega fyrr en nokkur er liðið á júlímánuð hvernig þessi makrílvertíð komi til með að vera. Hann ætlar þó að leyfa sér að vera bjartsýnn á sumarið. Það byggi hann meðal annars á því að þegar hann var á kolmunnaveiðum í apríl og maí sunnarlega í færeysku lögsögunni hafi fengist makríll með kolmunnanum. Meira hafi verið af honum vestan til í lögsögunni en austan til.

„Við sáum líka makríllóðningar þegar við vorum á siglingu á landhelgismörkunum milli Íslands og Færeyja. Ég er því hæfilega bjartsýnn á það að makríllinn sé á leiðinni til okkar. Ekki veitir heldur af aurum í ríkiskassann nú þegar ferðaþjónustan berst í bökkum. Loðnan brást og margt sem bjátar á í efnahagsmálum. Og hvað er það sem bjargar okkur? Það eru fiskveiðarnar.“