Í gær var fjölveiðiskipið Kap VE við veiðar á síld  inni í Vestmannaeyjahöfn en  hefur höfnin hingað til ekki verið þekkt fyrir fengsæl fiskimið nema þá helst vegna bryggjuveiða á marhnútum og ufsatittum.

Síðustu vikurnar hefur höfnin verið full af síld og höfðu yfirmenn hennar áhyggjur af ástandinu þegar síldin myndi drepast, að því er fram kemur á vefnum eyjar.net . Brugðið var á það ráð að láta Kap VE kasta inni við Básaskersbryggju. Báturinn fékk um 600 tonn í gær og fór aflinn í bræðslu.