Svonefnt togararall hefur farið fram árlega frá árinu 1985 og er það mikilvægur liður í að meta stofnstærð botnfiska við landið. Nú er rall ársins að hefjast og taka togararnir Gullver og Breki þátt í því ásamt hafrannsóknaskipunum Árna Friðrikssyni og Bjarna Sæmundssyni.

Gullver lét úr höfn í gær en skipstjóri á honum í rallinu er Steinþór Hálfdanarson. Heimasíða Síldarvinnslunnar spurði Steinþór hvaða svæði Gullver myndi fara yfir.

Hefur farið í 25-30 röll

„Okkar hlutverk er að toga á norðaustursvæðinu en það er frá Skjálfanda og austur um að Breiðdalsgrunni. Síðan munum við einnig toga á Þórsbankanum að færeysku lögsögunni. Þetta er gert í tveimur áföngum og má gera ráð fyrir viku eða tíu dögum í hvorn áfanga, en það fer töluvert eftir veðri. Ég vil taka það fram að ég hætti á sjónum fyrir þremur mánuðum en kallar eins og ég eru stundum fengnir í verkefni eins og þetta. Ég telst líklega hafa mjög góða rallreynslu en ég er búinn að fara í á milli 25 og 30 röll. Ég fór í eitt rall á Barða og eitt á Hjalteyri en oftast fór ég á Bjarti. Bjartur fór samtals 26 sinnum í rall og ég efast um að önnur skip hafi farið jafn oft og hann. Nú er Gullver að fara í fjórða rallið og ég hef tekið þátt í þeim öllum. Í rallinu eru 18 menn um borð, 13 í áhöfn og fimm frá Hafrannsóknastofnun. Samtals munum við taka 151 hol á norðaustursvæðinu í þessu ralli,“ segir Steinþór.