Uppsetningin gengur vel, að því er fram kemur á vef Slippsins á Akureyri .

Stór hluti af búnaðinum er kominn um borð í skipið og er verið að stilla hann af og setja upp hluta af tölvustýringu fyrir vinnsludekkið. Hjörvar Kristjánsson, verkefnnastjóri nýsmíða hjá Samherja, segir að það ríki mikil eftirvænting fyrir nýja vinnsludekkinu.

„Við erum mjög spennt fyrir vinnsludekkinu í Kaldbak. Það var lögð mikil áhersla á öfluga blæðingu, þvott og góða kælingu á fisknum og við erum fullviss að gæði afurða úr Kaldbak verði framúrskarandi”.

Áætlað er að uppsetning á vinnsludekki Kaldbaks verði lokið fyrir upphaf nýs fiskveiðiárs og að skipið haldi til veiða strax í kjölfarið.