Íslandsmet var slegið hjá Eskju á Eskifirði þegar færeyska uppsjávarskipið Christian í Grótinum landaði á sunnudaginn 3.653 tonnum af kolmunna úr einni veiðiferð. Þetta er stærsti farmur sem fiskiskip hefur landað í íslenskri höfn og jafnframt sá stærsti sem Christian í Grótinum hefur komið með í einni veiðiferð.

Áhöfninni var færð dýrindis terta í tilefni dagsins.

„Aflinn vigtaði nákvæmlega 3.652.803 kg og fyllti alla hráefnistanka Eskju af kolmunna og í tilefni þess færðum við áhöfn skipsins þessa myndarlegu köku til að fagna áfanganum. Óhætt að segja að löndunin hafi gengið vel en það tók okkur ekki nema innan við sólarhring að landa aflanum,“ segir í færslu á Facebooksíðu Eskju.

Stærsti farmurinn.
Stærsti farmurinn.

Skipið, Christian í Grótinum er með stærri og fullkomnari uppsjávarskipum í heimi og var smíðað 2022 í Karstensens skipasmíðastöðinni í Danmörku. Það er 83,5 metrar að lengd og 17 metrar á breidd.

Með þessum risafarmi hefur Eskja tekið á móti 28 þús. tonnum af kolmunna frá áramótum og þar af er helmingur hráefnisins keyptur af færeyskum og norskum skipum.