Kínverjar veiddu mest allra þjóða árið 2014, en Norðmenn veiddu mest allra Evrópuþjóða og eru í 11. sæti yfir mestu fiskveiðiþjóðir heims. Íslendingar eru í 20. sæti á heimsvísu með 1,1% heimsaflans.
Ísland er í öðru sæti í veiðum á Norður-Atlantshafi á eftir Noregi en á undan Rússlandi.
Aflinn í heiminum árið 2014 var 96,9 milljón tonn, sem er 696 þúsund tonnum meira en árið áður, samkvæmt tölum Matvæla- og landbúnaðarstofnunar Sameinuðu þjóðanna (FAO). Mestur afli veiddist í Kyrrahafi. Undanfarin ár hefur mest verið veitt af perúansjósu en mikill aflasamdráttur á milli áranna 2013 til 2014 varð til þess að alaskaufsi náði á toppinn yfir mest veiddu fisktegundir árið 2014. Mest af heimsaflanum var veiddur í Asíu, næst mest í Ameríku og svo Evrópu.
Sjá nánar á vef Hagstofunnar.