Ísfell opnaði nýverið þvotta- og þjónustustöð fyrir fiskeldispoka á Flateyri. Þvottastöðin er búin þvottatromlu frá Björdal – Industrier í Noregi. Starfsfólk Ísfells sér um að þvo, slitprófa, sjónskoða og gera við netapokana á verkstæði félagsins á Flateyri. Þetta kemur fram í frétt á heimasíðu Ísfells.

Stöðin hefur vottunarleyfi frá Noomas í Noregi og mun starfa skv. staðlinum NS 9415, sem er norskur staðall sem gildir um hönnun og notkun á búnaði til fiskeldis í sjó.Gæðakerfið tekur á verkefnalýsingu frá móttöku poka, þvottar, skoðunar og viðgerðar til vottunar og afhendingar sem hefur tilvísun í norska staðalinn. Sjá nánar á heimasíðu Ísfells .