Ísfell ehf. hefur gert kaupsamning við Arctic Odda ehf. um kaup á húsnæði þess að Hafnarbakka 8 á Flateyri. Byggingin er stutt frá höfninni og á ákjósanlegum stað fyrir rekstur þvotta- og þjónustustöðvar fyrir fiskeldispoka, að því er segir á heimasíðu Ísfells.
Ísfell er með þessum kaupum að byggja undir starfsemi sína á Flateyri og huga að framtíðarvexti félagsins á Vestfjörðum samhliða þeim vexti sem er fyrirhugaður hjá fiskeldisframleiðendum. Með stærra húsnæði verður hægt að bjóða eldisfyrirtækjum upp á geymslu á pokum eftir þvott og yfirferð við góðar aðstæður. Einnig sér fyrirtækið tækifæri til að efla þjónustu við útgerðir á Vestfjörðum og bjóða almenna víra- og netaverkstæðis þjónustu í nánustu framtíð.
Eignin var afhent til Ísfells um áramótin og hefur félagið þegar tekið við rekstri hennar.